
Friday May 09, 2025
#0088 Tveir úr Tungunum
Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg
Já þá erum við bara tveir. Hjörtur og Snæbjörn setjast niður og ræða málin. Það er hátíð í bæ því Svörtu Tungurnar ætla að dusta rykið af D&D ævintýrinu Descent into Avernus, sem við spiluðum síðast fyrir sirka einu og hálfu ári.
Af því tilefni ræðum við um öll þessi ókláruðu spil og lausa enda. Hvaða hluti verður maður hreinlega að klára og hvenær á bara að gefast upp? Hvernig veit maður þegar eitthvað er bara búið spil, eða hvað er þess virði að berjast fyrir?
Erum við ennþá að tala um spunaspil, eða bara lífið? Vorum við eitthvað að tala um spunaspil yfirhöfuð? Ég veit það ekki!
Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook:
www.facebook.com/groups/svortutungurnar
OG!
Við teygjum anga okkar yfir breiðan völl internetsins, því nú erum við komin með vefsíðu OG instagram síðu. Þar munum við henda inn allskonar uppfærslum og rugli. Klikkið endilega við!
Insta: www.instagram.com/svortutungurnar
Vefsíða: www.svortutungurnar.is/
– Mættir eru: Hjörtur og Bibbi
– Tónlist: Power Word: Kill
– Flytjandi: Scorching Ray Taylor
No comments yet. Be the first to say something!