
Tuesday May 19, 2026
#0111 Brú milli guðdómsins og veruleikans
Þátturinn er í boði Malbygg
Athugið að þátturinn inniheldur spilliefni um kvikmyndina Project Hail Mary.
Hvað er list? Er listamanneskjan bara tilgerðarlegur aumingji sem á að fá sér alvöru vinnu? Eða það bara enn ein afleiðing brothættrar karlmennsku að geta ekki bara notið listar og sköpunar án þess að þurfa að smætta það? Og hvað í andskotanum hefur þetta með spunaspil að gera?
Snæbjörn kafar á dýpið í sínu andlega ferðalagi um sína eigin innri rödd og raddbeitingu í spunaspilum, Hannes bjargar móður sinni, Óli veltir upp áleitnum spurningum um skoplist og eftirhermur, og Hjörtur rýnir í kvikmyndina Project Hail Mary á sinn hárbeitta og nákvæma hátt.
Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook:
www.facebook.com/groups/svortutungurnar
Kíkið líka endilega á samfélagsmiðla okkar en þar detta inn allskonar tíðindi og skemmtilegheit:
Insta: www.instagram.com/svortutungurnar
Vefsíða: www.svortutungurnar.is/
– Mættir eru: Hannes, Hjörtur, Snæbjörn og Óli
– Tónlist: Dimension Door
– Flytjandi: Scorching Ray Taylor
No comments yet. Be the first to say something!