Episodes

Saturday May 06, 2023
Saturday May 06, 2023
Þátturinn er í boði Quest Portal.Kort og fígúrur? Þrívíddarprentað landslag, borgir og bæir? Reitir og flísar? Flatskjáir jafnvel? Eða er nóg að ímynda sér allt saman og nota hugann? Hvað með blöndu af þessu öllu?Sjóvá er bakhjarl Hljóðkirkjunnar. – Mættir: Snæbjörn, Hjörtur, Hlynur, Hilmir – Tónlist: Dissonant Whispers – Flytjandi: Scorching Ray Taylor

Saturday Apr 29, 2023
Saturday Apr 29, 2023
Þátturinn er í boði Quest Portal.Spjall við í Gísla Einarsson í Nexus. Sagan, áhugamálin og allskonar spjall. Já og þrjár Svartar tungur að fanboja yfir sig!Sjóvá er bakhjarl Hljóðkirkjunnar. – Mættir: Snæbjörn, Björn, Ólafur – Tónlist: False Life – Flytjandi: Scorching Ray Taylor

Saturday Apr 22, 2023
Saturday Apr 22, 2023
Þátturinn er í boði Quest Portal.⚠️SPOILER⚠️HÖSKULDUR⚠️Umfjöllun um kvikmyndina Dungeons & Dragons: Honor Among Thieves. Þátturinn er yfirfullur af spilliefni og persónulegum skoðunum.Sjóvá er bakhjarl Hljóðkirkjunnar. – Mættir: Tryggvi, Ólafur, Hannes, Hilmir – Tónlist: Wall of Fire – Flytjandi: Scorching Ray Taylor

Saturday Apr 15, 2023
Saturday Apr 15, 2023
Railroad eða Sandbox? Á allt að vera opið í alla enda og allar ákvarðanir í höndum spilarana, eða er betra að stjórnandinn leiði hópinn áfram eftir einstigi?Þátturinn er í boði Sjóvá og framleiddur af Hljóðkirkjunni.Þetta málefni var tekið af umræðugrúppunni á Facebook þar sem hlustendur geta stungið upp á málefnum sem tekin verða fyrir í þáttunum. – Mættir: Björn, Hannes, Hilmir, Hjörtur – Tónlist: Vicious Mockery – Flytjandi: Scorching Ray Taylor

Saturday Apr 08, 2023
Saturday Apr 08, 2023
Hver ert þú í þínu spunaspil? Skaparðu karakter sem er ýkt útgáfa af þér, eða ferðu langt út fyrir formið og býrð til eitthvað allt annað? Ætlaðirðu mögulega að gera það fyrra en lendir alltaf í því seinna?Þátturinn er í boði Sjóvá og framleiddur af Hljóðkirkjunni.Þetta málefni var tekið af umræðugrúppunni á Facebook þar sem hlustendur geta stungið upp á málefnum sem tekin verða fyrir í þáttunum. – Mættir: Snæbjörn, Tryggvi, Hlynur, Hjörtur – Tónlist: Frost Fingers – Flytjandi: Scorching Ray Taylor

Saturday Apr 01, 2023
Saturday Apr 01, 2023
Hvað á að gera þegar ekki allir spilarar komast? Á að spila eitthvað annað, eða á að halda áfram með framhaldssöguna? Og ef það er gert, hvernig fer þá með persónu spilarans? Hvað með félagslega þáttinn? Er í lagi að láta vita með hálftíma fyrirvara? Hvað með stjórnandann sem eyddi allri vikunni í að skrifa, þýða, teikna, mála, prenta og plasta?
Þetta málefni var tekið af umræðugrúppunni á Facebook þar sem hlustendur geta stungið upp á málefnum sem tekin verða fyrir í þáttunum. – Mættir: Snæbjörn, Tryggvi, Hlynur, Hjörtur – Tónlist: Prayer of Healing – Flytjandi: Scorching Ray Taylor

Saturday Mar 25, 2023
Saturday Mar 25, 2023
Hver er hinn eiginlegi munur því að spila og stjórna? Er annað göfugra en hitt? Er sanngjarnt að mesti undirbúningurinn lendi á einni manneskju eða eru verðlaunin nógu stór? Hvort er skemmtilegra? Hvert er hlutverk stjórnandans? Hversu mikið má spilari skipta sér af stjórnun spilsins? Þurfa öll að prófa bæði?
Hvort ert þú meiri spilari eða stjórnandi? Finndu umræðuhópinn okkar á Facebook og blandaðu þér í umræðuna. – Mættir: Tryggvi, Hlynur, Ólafur, Björn – Tónlist: Healing Word – Flytjandi: Scorching Ray Taylor

Saturday Mar 18, 2023
Saturday Mar 18, 2023
Hvort er töff eða ótöff að spila spunaspil? Og skiptir það máli? Það skiptir í það minnsta nógu miklu máli til þess að hægt sé að gera heilan þátt um það og af nógu er að taka. Menn opinbera sig í þættinum og komast að niðurstöðu. LARP-samfélagið ætti að hlusta á þennan þátt því við erum með skilaboð/beiðni til þeirra.
Þetta málefni var tekið af Umræðugrúppunni á Facebook þar sem hlustendur geta stungið upp á málefnum sem tekin verða fyrir í þáttunum. – Mættir: Björn, Hjörtur, Hannes, Hilmir – Tónlist: Crusader's Mantle – Flytjandi: Scorching Ray Taylor

Saturday Mar 11, 2023
Saturday Mar 11, 2023
Ævintýri út úr búð eða innan úr heila stjórnandans og jafnvel spilahópsins? Nú, eða einhver blanda úr hvoru tveggja? Þinn eigin heimur eða eitthvað sem hefur orðið til hjá öðrum? Er meira ekta að spila sitt eigið eða er göfugt að halda sig innan veggja veraldar sem heimsbyggðin spilar? – Mættir: Snæbjörn, Hjörtur, Tryggvi, Hilmir – Tónlist: Toll the Dead – Flytjandi: Scorching Ray Taylor

Saturday Mar 04, 2023
Saturday Mar 04, 2023
Hversu verðmætt er lífið í spunaspilum? Hvernig er að missa karakter sem spilari? Hvernig er að valda dauða karakters sem stjórnandi? Hvernig getur þetta skipt svona ógurlega miklu máli og hreyft við alvöru tilfinningum? Eigum við kannski öll að lifa endalaust? Og hvað varð um Arkadiuz Glod?ATH: Við athugun komumst við að þeirri niðurstöðu að umfjöllun um útgefin ævintýri hefði verið svolítið óvarleg og gæti spillt fyrir fólki sem á eftir að spila þessar sögur. Enda þótt spilliefnið hafi ekki verið alvarlegt tókum við á ákvörðun að blíbba út mögulega Höskulda. Við lærum af þessu og pössum okkur betur í framtíðinni. – Mættir: Tryggvi, Hlynur, Hjörtur, Hilmir – Tónlist: Radiance Of The Dawn – Flytjandi: Scorching Ray Taylor
